„Það er enginn að fara að ganga inn í neinn núverandi meirihluta“

Einar Þorsteinsson, segist ekki ætla að ganga inn í núverandi meirihluta. Hann mætti á Hringbraut og verður í viðtali í Fréttavaktinni í kvöld á slaginu 18:30.

,,Meiri­hlutinn féll og það eru skýr skila­boð frá kjós­endum. Því er enginn að fara að ganga inn í neinn nú­verandi meiri­hluta næstu fjögur árin. Við erum að tala um nýjan meiri­hluta með nýjum mál­efna­samningi,“ segir Einar í við­talinu.

Engar form­legar við­ræður um meiri­hluta eru hafnar. Ó­form­legar við­ræður fara nú fram og segist Einar hafa rætt í Hildi, Dag, Þór­dísi Lóu og Kol­brúnu í dag. Hann segir líklegt að einhverjir dagar líði áður en meirihluti verði myndaður.

„Það þarf að myndast traust milli fólks. Ég ætla ekkert að drífa mig í þessu en það er þó gott að hafa á­kveðinn tíma­ramma því borgar­stjórn kemur saman í byrjun júní og þá er gott að vera búin að ljúka þessu,“ segir Einar.