Söngkonan Móeiður Júníusdóttir prýðir forsíðu helgarblaðs Fréttablaðsins en þar segir hún meðal annars frá föðurmissinum þegar hún var 10 ára gömul sem hún vann úr síðar á lífsleiðinni.
„Ég held að börn geti ekki hugsað um svona hluti á vitrænan hátt. Ég lokaði þetta niðri og vildi lítið tala enda hefur maður ekki forsendur til þess og á ekki orðin. Börn búa yfir svo mikilli sjálfsbjargarviðleitni og ég man eftir að hafa haldið í það sem virkaði og var gott,“ segir Móa í viðtalinu en faðir hennar, Júníus H. Kristinsson, sagnfræðingur lést frá stórum barnahópi.
„Það breytir aftur á móti allri hugsun hjá saklausu barni að átta sig á því að heimurinn getur hrunið. Að átta sig á þessum endanleika. Öll þurfum við einhvern tíma að gera það en það er mjög algengt að börn bregðist svona við, geymi þetta og haldi áfram lífinu, þau vilja lifa,“ útskýrir Móa sem segist vissulega hafa fengið að hitta sálfræðing sem barn en ekki verið tilbúin til að opna sig við hann. „Það á ekki að neyða börn til þess ef þau geta það ekki og vilja ekki.“