Hvenær verðum við eiginlega miðaldra? Þessu veltir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir fyrir sér í skemmtilegum bakþankapistli í Fréttablaðinu í dag.
Jóhanna kveðst fyrir skemmstu hafa heyrt tiltölulega unga konu nota orðasambandið „ég er að miðaldra yfir mig“ í samhengi við að spila golf. Í framhaldinu kom hún auga á ýmsar dramatískar setningar tengdar miðjum aldri.
„Karl sem var ekki nógu töff á Twitter var sagður hafa miðaldrað upp á bak. Konu með áberandi flottan starfsferil var lýst sem miðaldra slæðukerlingu, og framkvæmdastjórn fyrirtækis sögð vera eitthvað svo miðaldra.“
En hvenær verðum við þá miðaldra? Jóhanna fór á stúfana og spurði Google sem ávallt hefur svar á reiðum höndum.
„Doktor Google telur að fólk sé orðið miðaldra eftir 35 ára aldur og að ástandið vari til sextugs. Ef viðkomandi eru svo lánsöm að lifa þetta lengi. Þetta er mögulega skellur fyrir unga fólkið sem taldi sig nokkuð langt frá þessum hörmulegu örlögum. Kannski enn frekar í þeim tilvikum þegar viðkomandi skilgreina virði sitt út frá því að vera ekki miðaldra,“ segir hún og bætir við að það geti leitt til alvarlegrar sjálfsmyndarkrísu meints ungs fólks sem samfélagið þarf að bregðast við, jafnvel með stuðningshópum, kertafleytingu og kannski mínútu þögn.
„Þeim til huggunar bendir önnur rannsókn til þess að fólk verði miðaldra um 45 ára aldur. Þið hafið tíu ár, krakkar mínir. Kenningin um að aldur sé hugarástand fær þarna byr undir báða vængi. Fyrir þau ykkar sem vissuð það ekki þá eru hæð og þyngd líka hugarástand,“ segir Jóhanna sem endar pistilinn á léttum nótum:
„Sem betur fer þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þessari framtíðarsýn. Enda fæddist ég að sögn dóttur minnar áttræð, borðandi kjötsúpu og hlustandi á Rás 1 í sveitinni, löngu búin að vinna þessa keppni.“