„Hér er verið að eyða peningum að óþörfu,“ sagði Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar, í bókun á fundi ráðsins í gær.
Á fundinum samþykkti ráðið ósk Skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar þar sem óskað var heimildar til að ljúka undirbúningi á gatnamótum Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis.
Óskað var heimildar til verkhönnunar og gerðar útboðsgagna á Skólavörðustíg, en markmiðið með framkvæmdinni er að afmarka varanlegt göngugötusvæði á Skólavörðustíg með skýrum hætti og bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 10 milljónir króna.
Áheyrnarfulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins mótmæltu fyrirhuguðum framkvæmdum í bókunum sínum.
„Er ekki nóg að loka götunum með merkingum? Hvers vegna þarf að fara í þessar framkvæmdir upp á tæpar 10 milljónir? Er þetta forgangsröðun á fjármagni? Þetta verk er langt, langt í frá að vera lögbundið eða grunnþjónusta. Það eru allir að gefast upp á þessari sóun sem stunduð er í gæluverkefni meirihlutans,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins og áheyrnarfulltrúi í skipulags- og samgönguráði.
Kolbrún Baldursdóttir sagðist velta fyrir sér hvort að með framkvæmdinni sé verið að loka fyrir möguleika á að snúa þessari ákvörðun við.
„Eins og margoft hefur komið fram eru miklar deilur um þessa framkvæmd alla og ef sú staða kæmi upp að fáir eigi eftir að koma á svæðið eftir breytinguna og verslanir komi jafnvel ekki til með að þrífast þarna er mikilvægt að geta breytt aftur til baka með litlum tilkostnaði. Þá getur komið upp sú staða að búið sé að henda 10 milljónum í ekki neitt. Flokkur fólksins leggur til að beðið sé með þessa aðgerð til að sjá hverju fram vindur. Hafa skal í huga að um göngugötur eiga eftir að aka bílar, P merktir bílar og bílar sem losa vörur. Kantsteinar og upphækkanir henta þá illa,“ sagði Kolbrún en tillagan var þó sem fyrr segir samþykkt á fundi ráðsins í gær.