Tenerife-ferð Svövu breyttist í mar­tröð: „Ég finn ekki fyrir fótunum“

Fyrir ári fór Svava Magnús­dóttir til Tenerife með vin­konum sínum sem átti að vera skemmti­ferð en á augna­bliki um­turnaðist líf hennar.

Í við­tali í helgar­blaði Frétta­blaðsins ræðir Svava hvernig líf hennar breyttist eftir að hún varð fyrir því að toppur á pálma­tré féll á hana er þær vin­konur sátu á veitinga­stað.

„Tréð féll á mig og Sif, blöðin féllu yfir borðið og skrámuðu þær sem sátu móti okkur.

Ég heyrði bara stelpurnar öskra upp yfir sig: „Guð minn góður, Svava!“ og Silla kom að mér, hélt í höndina á mér þegar ég sagði við hana: „Ég finn ekki fyrir fótunum.“ Ég var í sandölum og horfði á fætur mína líf­lausa og endur­tók að ég gæti ekki hreyft þá.

Ég heyrði hana þá garga „She can’t feel her legs!“ Þjónninn hélt svo stólnum til að reyna að halda mér uppi. Silla hefur sagt mér að hún hafi séð þetta augna­blik ljós­lifandi lengi á eftir þegar hún lokaði augunum: And­lit mitt og hræðsluna.“

Hér má lesa við­talið við Svövu Magnús­dóttir í helgar­blaði Frétta­blaðsins.