Telur best að hætta að eyða peningum í Eurovision eftir niðurstöðuna á laugardag

Anna Kristjánsdóttir fylgdist spennt með Eurovision-söngvakeppninni á laugardaginn á Tenerife eins og margir aðrir Íslendingar. Systur, sem fluttu lagið Með hækkandi sól, riðu ekki feitum hesti í lokakeppninni á laugardag þrátt fyrir góða frammistöðu og endaði lagið í 23. sæti.

Anna gerði söngvakeppnina upp á Facebook-síðu sinni í gærmorgun og viðurkennir að hún hafi ekki hoppað hæð sína af kæti yfir úrslitunum.

„Greinilegt var að Íslendingar áttu ekkert inni hjá neinum frekar en fyrri daginn, héldu áfram að greiða Svíum atkvæði sín að venju eins og auðsveipir rakkar, en fengu ekkert til baka. Miðað við mörg atriði sem fengu mörg stig í keppninni eins og til dæmis Noregur með sína hörmung held ég að best sé að hætta þessum fjáraustri með þátttöku í keppninni,“ segir hún og heldur áfram:

„Sjálf er ég enginn aðdáandi Júróvisjón, en ákvað að gefa þessari keppni tækifæri vegna frábærrar frammistöðu Systranna og bróður þeirra, en varð fyrir vonbrigðum með úrslitin.

Niðurstaða, því meiri fíflaskapur, þess fleiri stig. Tónlistin er aukaatriði. Ég fullyrði að ekkert lag úr þessari keppni muni verða langlíft.“