Telma lét í sér heyra: Nöfn Ólafs og Víkings birtust en ekki hennar og Önnu

Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir gat ekki setið á sér þegar hún las umfjöllun Vísis um eitt tiltekið atriði í þáttunum Vegferð sem sýndir eru á Stöð 2 um þessar mundir.

Þar lék Telma, ásamt þeim Önnu Hafþórsdóttur, Ólafi Darra Ólafssyni og Víkingi Kristjánssyni, í tiltekinni senu um stöðu kvenna í kvikmyndum. Það sem vakti hins vegar athygli Telmu var að aðeins Ólafur Darri og Víkingur voru nefndir á nafn í upprunalegu útgáfu fréttarinnar en hvergi var minnst á þær Telmu og Önnu – þó að þær hafi raunar verið mikið meira áberandi í atriðinu en þeir Ólafur Darri og Víkingur.

Telma bendir í færslu sinni á Facebook að senan í þættinum hafi verið skýr og hárbeitt ádeila á stöðu kvenna í kvikmyndum sem og viðbrögð við umræðu um hvernig hana megi bæta.

„Það er því sérstaklega í ljósi þess hvers eðlis þessi sena er að ég get ekki annað en hlegið að þeirri staðreynd að blaðamaður hafi ekki haft fyrir því að nafngreina mig eða Önnu í þessari umfjöllun,“ segir Telma og bætir við:

„Mér finnst þetta eiginlega bara sjúklega kómískt, eins og þessi grein hafi verið skrifuð til þess að sanna punkt senunnar. Eins og til þess að undirstrika það að þessi umræða eigi ekki bara rétt á sér heldur sé hún hreinlega nauðsynleg í okkar samfélagi. Í raun fullkomið framhald af senunni.“

Hún segir að blaðamaðurinn hafi ekki upplifað framlag hennar og Önnu, holdgervinga þessa karaktera, til þessa atriðis nægilega mikilvægt til að nefna þær sem leikkonur á nafn í senunni. Það eitt og sér sé hálfgert afrek þegar horft er til senunnar sem um ræðir.

„En svo eins og til þess að kóróna þetta allt saman þá nafngreinir blaðamaður Baldvin Z leikstjóra en af honum sjást aðeins fætur sem ganga inn í rammann undir lok senunnar. Svona dót er bara ekki hægt að skrifa sko.“

Telma segir í færslu sem hún skrifaði í gærkvöldi að hún hafi sent póst á ritstjórn Vísis í gærmorgun og bent á þetta. Fékk hún svar frá umræddum blaðamanni sem baðst afsökunar og breytti greininni á þá lund að nú standa nöfnin þeirra í greininni ásamt þeirri viðbót að báðar fari þær með mikinn leiksigur.

„Við Anna erum nefnilega hvorugar “Ungar konur að reyna að feta okkur áfram í kvikmyndaiðnaði” heldur erum við báðar bara þrusu flottar leikkonur sem höfum unnið í þessum bransa um árabil og eðlilegt væri að umfjöllun um okkur og okkar vinnu væri í samræmi við það. Ég þakka Stefáni hjá Vísi fyrir falleg orð ásamt þessari ótrúlega fyndnu staðfestingu á mikilvægi þessarar senu.“

Hægt er að sjá færslu Telmu hér að neðan og umrædda senu:

Í gær var birt stutt grein á Vísir.is þar sem umfjöllunarefnið og myndefnið sem fylgdi var sena úr sjónvarpsseríunni...

Posted by Telma Huld Jóhannesdóttir on Þriðjudagur, 4. maí 2021