Telja réttast að skylda eigi landsmenn í bólusetningu gegn COVID-19

Um sex af hverjum tíu landsmönnum sem tóku afstöðu í könnun Zenter fyrir Fréttablaðið eru sammála því að bólusetning gegn COVID-19 eigi að vera skylda hér á landi.

Eins og kunnugt er hófust bólusetningar gegn COVID-19 í morgun, sólarhring eftir að fyrstu tíu þúsund skammtarnir komu til landsins.

Fjallað er um könnunina á forsíðu Fréttablaðsins í dag en rúmlega þriðjungur svarenda, eða 34%, eru mjög fylgjandi bólusetningarskyldu og 24% eru frekar sammála. Tæpur fjórðungur er aftur á móti ósammála því að skylda ætti fólk til bólusetningar gegn COVID-19, tíu prósent eru mjög ósammála og fjórtán prósent frekar ósammála.

Fram hefur komið að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar ætlar að þiggja bóluefni gegn veirunni, en samkvæmt könnun sem Gallup framkvæmdi í september og Maskína í desember ætla um níu af hverjum tíu að þiggja bólusetningu. Til að ná hjarðónæmi þarf þátttöku um 70% landsmanna.