Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, segir í viðskiptaþætti Jóns G. Haukssonar að forráðamenn Icelandair geri ráð fyrir því að það taki nokkrar vikur frekar en mánuði að markaðssetja MAX-vélarnar þær verða teknar í gagnið aftur; væntanlega á fyrri hluta næsta árs.
Þeir Stefán Einar og Jón G. fara ítarlega yfir væntanlegt hlutafjárútboð Icelandair Group í þættinum og ræða einmitt það hvernig til muni takast að fá fólk til að fljúga með vélunum aftur eftir stoppið. Þetta skiptir máli því Icelandair Group ætlar að reiða sig á Boeing og MAX-vélarnar áfram og hafa 12 slíkar vélar í notkun á næstu árum.
„Það hafa ekki verið gerðar kannanir á afstöðu fólks hér á landi, svo ég viti, en þetta hefur verið kannað í Bandaríkjunum af fjölmiðlum og fjármálafyrirtækjum og það er misjafnt hljóð í fólki og ýmislegt sem sannfæra þarf fólk um. Það mun taka tíma en forráðamenn Icelandair Group telja að það verði frekar talið í vikum en mánuðum – en flestir munu eflaust líta til reynslunnar og ef þær reynast vel í fyrstu flugum og látið er vel af þeim er líklegt að björninn sé unninn. En ekki er vitað hvenær þær fara í loftið en nú er verið að ræða um fyrri hluta næsta ársins,“ segir Stefán Einar Stefánsson.
Viðtalið við Stefán og þáttinn í heild má sjá hér að neðan.