Þriggja herbergja 110 fermetra íbúð er komin í sölu á Eignamiðlun. Þar er henni lýst sem endaíbúð á annarri hæð við Kleppsveg 130 í „Löggublokkinni.“
Tekk setur svip á íbúðina en upprunalegir innbyggðir fataskápar eru úr þessum vinsæla við sem setja skemmtilegan svip á íbúðina. Hurðir í íbúðinni eru einnig upprunalegar úr tekki.
Upprunalegir skápar eru í íbúðinni.
Tekkviðurinn setur sterkan svip á íbúðina.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, tvennar svalir stór og björt stofa, rúmgott eldhús með borðkrók og þvottaherbergi innaf.
Húsið lítur vel út að utan og hefur að sögn fengið gott viðhald en það var yfirfarið og málað 2019.
Ásett verð er 51,9 milljónir en nánar er hægt að skoða íbúðina hér
Stofan er rúmgóð og björt.
Fasteignasalan kallar blokkina Löggublokkina.