Tekjulægstir og Reykvíkingar eru þeir tveir hópar sem helst vilja núverandi ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks burt. Tæp 58 prósent Reykvíkinga vilja hana burt en tæp 70 prósent úr hópi tekjulægstra, það er með tekjur undir 400 þúsund krónum á mánuði.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Athygli vekur að íbúar í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, sem og íbúar á Suðurlandi og Reykjanesi eru hlynntastir ríkisstjórnarsamstarfinu, eða rétt tæplega 53 prósent á báðum svæðum.
Þá eru svarendur með næsthæstu tekjurnar, mánaðartekjur á bilinu ein milljón til 1,199 milljónir jákvæðastir en tæp 55 prósent þeirra vilja ríkisstjórnina áfram á næsta kjörtímabili. Stuðningsmenn Vinstri-grænna eru neikvæðastir í garð stjórnarsamstarfsins af stuðningsmönnum flokkanna þriggja.
Aðeins 29 prósent stuðningsmanna VG vill ríkisstjórnina áfram. 88 prósent sjálfstæðismanna vill hana áfram og 82 prósent framsóknarmanna. Alls vilja 46,4 prósent kjósenda ríkisstjórnarsamstarfið áfram en 53,6 prósent eru á móti því. Konur eru aðeins hlynntari því en karlar.