Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af karlmanni í vikunni sem var í akstri á fjórhjóli með ársgamalt barn sitt meðferðis á hjólinu.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að manninum hafi verið tjáð að þessi háttsemi væri alls ekki í lagi. Þá hafi manninum verið tilkynnt að hann þyrfti alltaf að vera með hjálm þegar hann væri á þessu farartæki, en maðurinn var hjálmlaus þegar lögregla hafði afskipti af honum.
Þá viðurkenndi ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gærkvöldi neyslu á fíkniefnum. Hann ók auk þess sviptur ökuréttindum og var með í fórum sínum þrjá poka, tvo með meintu amfetamíni og einn sem innihélt Viagra.
„Lögregla hélt svo uppi víðtæku eftirliti í vikunni eins og áður. Umferð við grunnskóla var með ágætum fyrir utan eitt tilvik þar sem átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Þá var farið í eftirlit með verslunum þar sem athugað var með sóttvarnir og fleiri atriði vegna COVID-19. Í níu verslunum sem athugaðar voru var alls eins og best varð á kosið, talið inn í þær og fjölnotakassar sótthreinsaðir milli viðskiptavina.“