Teitur með uppsagnarbréf í smíðum: „Það er ekkert hægt að koma svona fram við fólk“

Teitur Atlason, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, er allt annað en sáttur við deiliskipulagsbreytingar við Vesturbæjarlaugina.

Vísir greindi frá því í gærkvöldi að Teitur ætli að segja af sér í dag vegna málsins en fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Teitur segir það fáránlegt að meirihluti borgarstjórnar hafi leyft einbýlishúsaeigendum að sölsa undir sig lóð við Vesturbæjarlaugina – endurgjaldslaust.

Í frétt Vísis í gærkvöldi kom fram að Teitur væri ekki búinn að tilkynna samflokksmönnum sínum ákvörðunina en uppsagnarbréfið væri í smíðum.

Málið snýr að lóðum við Vesturbæjarlaugina, við bakgarð einbýlishúsa við Einimel og Vesturbæjarlaugina. Bent var á það í frétt Stöðvar 2 að hart hafi verið deilt um lóðirnar á undanförnum árum en nú standi til að leysa þær deilur með því að stækka einkalóðirnar á svæðinu.

Teitur er allt annað en sáttur við þetta og hyggst segja af sér sem varaborgarfulltrúi vegna málsins.

„Þetta er svo yfirgengilegt og þá get ég alveg eins hugsað: Á ég að sækja um að taka í fóstur hluta úr Laugardalnum? Eða til dæmis úr Hljómskálagarðinum, á ég kannski að taka hundrað fermetra í fóstur þar? Bíða svo í þrjátíu ár og fara síðan að semja við borgina? Og fá þarna fullt af peningum fyrir? Þetta er svívirðilegt,“ segir hann og bætir við að lóðaverð á svæðinu sé með því hæsta sem gerist.

„Það er bara þannig. Og þó að þetta sé garður þá er samt alveg rosalegt value í þessu. Bara eftir þetta, þá er eignaverðið á þessum eignum búið að aukast um nokkrar milljónir fyrir ríkasta fólkið í Vesturbænum - á kostnað krakka og hundafólks sem er búið að hittast þarna ár eftir ár. Þetta er skammarlegt,“ segir hann og bætir við: „Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk.“

Nánar er fjallað um málið á vef Vísis.