Teitur Örlygsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, er búinn að fá sig fullsaddan af þeirri neikvæðni sem verið hefur í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta.
Gríðarlegar breytingar hafa verið á íslenska landsliðinu undanfarin misseri þar sem nánast allir úr hinu svokallaða gullaldarliði eru horfnir á braut eða ekki spilað til lengri tíma.
Ísland lék í gær gegn Ísrael í Þjóðadeildinni og fóru leikar 2-2 þar sem íslenska liðið sýndi ágætan leik á köflum. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari hefur átt undir högg að sækja frá íslenskum knattspyrnuáhugamönnum og sparkspekingum landsins sem hafa ekki hikað við að gagnrýna ákvarðanir hans og spilamennsku liðsins.
Teitur tók sig til og skrifaði nokkuð harðorða færslu á Twitter sem vakti nokkra athygli en hann virðist vera búinn að fá nóg af þeirri neikvæðni sem er í umræðunni í kringum liðið.
„Finnst það ansi mikið sjúkt að hluti manna sem fjalla opinberlega um fótbolta virðast hlakka yfir óförum Íslands. Oft til að upphefja eitthvað rotið egó með enga innistæðu, enga. Man ekki eftir að þessir háværustu spiluðu í efstu deild. „Sestu niður og þegiðu.”
Finnst það ansi mikið sjúkt að hluti manna sem fjalla opinberlega um Fótbolta virðast hlakka yfir óförum Íslands. Oft til sð upphefja eitthvað rotið egó með enga innistæðu. Enga, man ekki eftir að þessir háværustu spiluðu í efstu deild.
— Teitur Örlygsson (@teitur11) June 13, 2022
“Sestu niður og þegiðu.” #fotboltinet