Tara Margrét hætt: „Ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“

Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, sem setið hefur í stjórn Samtaka um líkamsvirðingu undanfarin tíu ár, eða frá stofnun þeirra, hefur ákveðið að segja sig frá frekari stjórnarstörfum.

Tara Margrét tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni skömmu fyrir hádegi.

„Þetta er ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ég finn að ég þarf að gera það fyrir eigin heilsu og velferð. Stjórnarstörfin hafa verið gefandi og stórkostleg en þau hafa líka tekið mikið frá mér og ég er að lenda harkalega á vegg núna. Ég finn mig knúna til að hlusta á þau merki sem líkaminn gefur mér um örmögnun og kulnun og hlýða þeim,“ segir Tara.

Hún segir að þó hún segi sig nú frá stjórnarstörfum þýði það ekki að hún ætli að hætta að tala fyrir líkamsvirðingu og gegn fitufordómum eða hætta að tjá skoðanir sínar um hin ýmsu mál. „Þið losnið ekki svo auðveldlega við mig,“ segir hún.

Tara bendir á að það sé mikil hugsjón og kraftur í líkamsvirðingarsamfélaginu hér á landi. Finnst henni það kristallast í þeirri stjórn sem hún kveð núna.

„Ég er ótrúlega spennt að fylgjast með og klappa fyrir áframhaldandi stjórn og störfum þeirra í framtíðinni. Efst í huga undanfarna daga er líka þakklæti fyrir allt peppið, hugulsemina og stuðninginn sem ég hef fengið frá vinum, fjölskyldu og samfélaginu öllu sl. 10 ár. Óteljandi komment og skilaboð frá allskonar fólki sem þakkaði fyrir sig og hvatti mig til dáða. Allt kraftmikla og yndislega fólkið sem ég hef kynnst, átt samstarf með og eignast ævilanga vini í. Ég ætla að halda fastar í það en mótlætið sem ég hef mætt.“

Tara útilokar ekki að snúa aftur til stjórnarstarfa síðar meir, þegar hún hefur náð meira jafnvægi og fyllt á tankinn eins og hún orðar það. „Framtíðin er enn óráðin. En fyrst ég er að taka mér þessa pásu langaði mig að nýta tækifærið og segja takk. Fyrir allt.“