Tara brjáluð yfir helgarviðtali DV við Audda Blö

„Djöfull er ég orðin þreytt á hvítum, miðaldra forréttindaköllum sem fá forsíðuplássið hverja helgina á fætur annarri hjá öllum fjölmiðlum,“ segir Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður samtaka um líkamsvirðingu, í færslu á Twitter. Hún vitnar þar til forsíðuviðtals DV við Auðunn Blöndal, eða Audda Blö, í nýjasta tölublaðinu.

„Það virðist vera regla að þessir gaurar fara í eitt slíkt viðtal 1x á ári, yfirleitt í tengslum við nýja vöru sem þeir eru að selja,“ segir hún svo.

„Það er til svo ótrúlega mikið af fólki í íslensku samfélagi sem er svo áhugavert, er að gera frábæra hluti til að breyta samfélaginu og geta kynnt nýja vinkla fyrir okkur og auðgað umræðuna. En nei við skulum fá Pétur Jóhann/Audda Blö í viðtal nr 492649572638! Ég bilast!“

Auddi er í ýtarlegu viðtali í nýjasta blaði DV hjá ristjóra blaðsins Tobbu Marinósdóttur.