Tanja Tómasdóttir, fyrsta íslenska konan sem öðlast réttindi til að vera umboðsmaður fyrir knattspyrnufólk, sótti eitt sinn um vinnu hjá KSÍ. Það er skemmst frá því að segja að hún fékk ekki starfið eins og hún lýsir í færslu á Twitter sem vakið hefur talsverða athygli.
Tanja, sem er lögfræðingur að mennt, er sjálf fyrrverandi knattspyrnukona og sat hún um tíma í stjórn Leikmannasamtaka Íslands. Í færslu sinni á Twitter sagði hún:
„Ég fór einu sinni í atvinnuviðtal hjá KSÍ. Sagði frá mastersritgerðinni sem fjallaði m.a. um tengsl reglusetningar í knattspyrnu við alþjóðlegan og íslenskan rétt og hvað ég hefði fram að færa um hvað mætti betur fara og hvernig regluverkið mætti vera skýrar og gagnsæi meira,“ segir hún og rifjar svo upp viðbrögð framkvæmdastjóra sambandsins á þessum tíma:
„Viðbrögð framkvæmdastj. voru ekki, áhugavert segðu okkur meira, heldur "ég heyri að þér finnst margt vera að hjá KSÍ". Nei ég fékk ekki vinnuna þrátt fyrir að hafa skrifað BA- og mastersritgerð á þessu sviði og staðist alþjóðlegt próf í FIFA regluverkinu þegar ég gerðist umboðsmaður. Það var greinilega ekki áhugi á að fá starfsmann sem var tilbúinn að gagnrýna og benda á það sem betur mátti fara þrátt fyrir að hafa sjúklegan áhuga og þekkingu á reglugerðum KSÍ og FIFA.“
Ég fór einu sinni í atvinnuviðtal hjá KSÍ. Sagði frá mastersritgerðinni sem fjallaði m.a. um tengsl reglusetningar í knattspyrnu við alþjóðlegan og íslenskan rétt og hvað ég hefði fram að færa um hvað mætti betur fara og hvernig regluverkið mætti vera skýrar og gagnsæi meira.
— Tanja (@tanjatomm) August 30, 2021