Tanja Ísfjörð, aðgerðasinni í hópnum Öfgar, er allt annað en sátt við umfjöllun Kveiks í gærkvöldi. Þar var rætt við leikarann Þóri Sæmundsson sem hefur mátt þola útskúfun og atvinnuleysi fjórum árum eftir að hann sendi ósæmilegar myndir.
Óhætt er að segja að þátturinn í gærkvöldi hafi vakið mikið umtal og hefur Kveikur sætt töluverðri gagnrýni á Twitter eins og sjá má á tístunum hér að neðan.
Ein þeirra sem gagnrýna Kveik harðlega er Tanja sem hefur verið áberandi í umræðunni um kynferðislegt ofbeldi að undanförnu. Hún sagði á Twitter í gærkvöldi:
„Loksins þegar þolendur eru að fá smá réttlæti og samfélagið að verða fyrir vitundarvakningu þá mætir Kveikur með “hold my beer” attitude og gefur Þóri sæm rödd sem ENGIN vildi andskotans heyra. Skiljiði hvað þið gerðuð mikinn skaða með þessu? 2 skref áfram, 17 afturabak.“
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter:
Loksins þegar þolendur eru að fá smá réttlæti og samfélagið að verða fyrir vitundarvakningu þá mætir Kveikur með “hold my beer” attitude og gefur Þóri sæm rödd sem ENGIN vildi andskotans heyra. Skiljiði hvað þið gerðuð mikin skaða með þessu? 2 skref áfram, 17 afturabak.
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) November 2, 2021
Ætli séu til tölur um hversu margar konur hafi dottið út af vinnumarkaði í kjölfar kynferðisofbeldis? Eru óvinnufærar vegna afleiðinga ofbeldisins eða fá ekki vinnu því þær kærðu karla með stærra platform eða meiri völd? Nei bara svona að spá.
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) November 2, 2021
Mér finnst að Kveikur ætti að breyta nafni þáttarins í Gasljós. Rímar vel við Kastljós.
— Henrý (@henrythor) November 3, 2021
Þessi þáttur og commentin á Facebook gefa öllum lúserum landsins sem beitt hafa ofbeldi ástæðu til að hugsa "skítt með það sem ég gerði, ég á skilið að komast aftur í samfélagið"
— Kata (@katrinsigjs) November 3, 2021
Það er ekki í lagi og að sjá það ekki fyrir er ljótur leikur gagnvart þolendum #kveikur
Hver ætli hafi verið manneskjan sem var bara - hey fáum Þórir Sæm í drottningaviðtal, maðurinn er kríp og allir vita það en omg hafið þið heyrt um þessa femínista sem eru bara að útiloka menn sem brjóta á ungum stelpum!!! Þórir beint í settið! #Kveikur hverjum datt þetta í hug?
— Steinunn Ýr (@steinunn_yr) November 3, 2021
Ég hef heyrt of margar sögur. Það er galið hvernig #kveikur leyfir honum að tala eins og þetta sé bara ein mynd og hugsunarleysi. Konur eru ekki öruggar þegar þær kæra eða koma fram undr nafni í núverandi kerfi, það er rót vandans og hjálpar gerendum að mála upp þægilega mynd.
— Hildur (@hihildur) November 3, 2021
Fæ ekki betur séð en að búið sé að redda manninum vinnu í kommentum á fb hjá kveik, það eru reyndar ekki góðar fréttir fyrir þá sem trúa á slaufunarmenningu. Sp. er hægt að fá #kveikur til að taka að sér atvinnumiðlun fyrir alla þolendurna sem hafa þurft að flýja sína vinnustaði?
— Ásta Marteins (@astamarteins1) November 2, 2021
Getum við cancelað #kveikur ?
— Inga, MSc. ♀️ (@irg19) November 2, 2021
Hvenær eiga menn að eiga afturkvæmt í samfélagið? Tjah, er ekki algjört lágmark að menn taki ábyrgð, sýni iðrun og biðjist afsökunar? #kveikur
— Sveinn Þórhallsson (@sveinnthorhalls) November 2, 2021
Þegar þú gerir eitthvað sem er skítlegt eðli, og vilt reyna laga það með því að gera þig að fórnalamb, þá er Kveikur til staðar til að bjóða þér einhliða drottningarviðtal og ávísun fyrir vorkunn frá Facebook kommentakerfinu
— Stefán Pettersson (@Stebbipett) November 2, 2021