Talsmaður Lögreglunnar í Greater Manchester segir, í svari við skriflegri fyrirspurnFréttablaðsins, engar nýjar upplýsingar liggja fyrir um stöðu mála hjá knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssyni en 455 dagar eru liðnir síðan hann var handtekinn í Bretlandi, grunaður um brot gegn ólögráða einstaklingi.
Gylfi hefur verið laus gegn tryggingu frá því skömmu eftir handtöku þann 16 júlí á síðasta ári og nýjustu vendingar í málinu hefðu átt að verða ljósar undir lok júlímánaðar á þessu ári en ekkert er vitað um stöðu Gylfa Þórs né framvindu málsins.
Gylfi, sem hefur um árabil verið atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu er nú án félags eftir að samningur hans við enska úrvalsdeildarfélagið Everton rann út í sumar.
„Það eru engar nýjar upplýsingar," segir í svari Lögreglunnar í Greater Manchester við skriflegri fyrirspurn Fréttablaðsins.
Gylfi Þór sást í fyrsta skipti meðal almennings frá handtöku í sumar á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu sem fram fór á Englandi. Gylfi var þar mættur á Manchester City Academy leikvanginn að horfa á frænku sína, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur spila með íslenska landsliðinu.
Ekki er því ljóst á þessari stundu hver framvindan í máli Gylfa Þórs verður en reikna má með að þrír kostir séu í stöðunni.
Þeir eru að málið verði látið falla niður og Gylfi verði þá frjáls maður, að rannsókn haldi áfram og að Gylfi verði þá áfram laus gegn tryggingu eða að hann geti orðið ákærður.