Talið er nær öruggt að Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, taki við formennsku eða varaformennsku í Samfylkingunni í haust. Logi Einarsson lætur af embætti formanns í haust en þetta tilkynnti hann í viðtali við Fréttablaðið um liðna helgi.
Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um hugsanlega arftaka Loga og hafa nöfn Kristrúnar og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra verið hvað mest áberandi upp á síðkastið. Í Fréttablaðinu í dag kemur þó fram að meiri óvissa sé um næstu skref Dags en Kristrúnar.
„Þau tvö eru athyglisverðir kostir. Báðir frambjóðendur hafa eiginleika sem geta gagnast foringjum mjög vel, en það eru ekki endilega sömu kostirnir hjá þeim tveimur,“ segir Ólafur Þ. Harðarson í Fréttablaðinu.
Hann segir að Kristrún hafi stimplað sig inn sem mikill spútnik í pólitík. Hún sé sérlega öflugur talsmaður jafnaðarstefnunnar og sérhæfð í efnahagsmálum.
„Sem dæmi man ég fyrir síðustu kosningar að hún var í debatt við Bjarna Ben um efnahagsmál. Þá tók ég eftir að hún átti algjörlega í fullu té við Bjarna í umræðu um efnahagsmál. Það eru ekki margir sem ráða við það,“ segir Ólafur.
Einnig bendir Ólafur á að Kristrún tali mannamál, hún njóti virðingar hjá andstæðingum og það sé áhugavert hvernig hún tengi efnahagsmál líðandi stundar við grunnhugmyndir jafnaðarstefnunnar.
Ólafur bendir á að Dagur hafi að sama skapi náði miklum árangri á sínum ferli og sýnt að hann er meðal klókustu stjórnmálamanna landsins. Sérstakur styrkur sé að Degi hafi tekist að vinna í fjögurra flokka meirihluta í Reykjavík. Þótt meirihluti falli nái hann að bræða saman nýjan.
„Þetta skiptir máli vegna þess að í landsmálum virðist ólíklegt að hægt sé að mynda þriggja flokka stjórn án þess að sjálfstæðismenn séu hluti hennar," segir Ólafur sem veltir fyrir sér hvort Dagur vilji taka að sér svo erilsamt starf að vera formaður flokks.
„Af persónulegum ástæðum kann Dagur sjálfur að hafa efasemdir, þar gætu spilað inn í fjölskyldumál eða heilsa,“ segir Ólafur.