SOS Barnaþorpin hafa undanfarin ár haldið úti jóladagatali sem er öðruvísi en flest önnur dagatöl sem boðið er upp á. Í stað þess að opna nýjan glugga á hverjum degi og fá súkkulaðimola eða aðrar gjafir að launum þá leynast stutt myndbönd á bak við hvern glugga þar sem þátttakendur fá að kynnast börnum sem búa víðs vegar um heiminn, aðstæðum þeirra og menningu.
Dagatalið ber heitið Öðruvísi jóladagatal og verður þetta sjötta árið í röð sem SOS Barnaþorpin bjóða upp á það. „Upphaflega var dagatalið eingöngu ætlað grunnskólanemum á landinu en í fyrra þurftum við að hugsa í lausnum þegar við vissum ekki hvernig skólahaldi yrði háttað vegna kórónuveirunnar og ákváðum við því að hafa dagatalið opið fyrir alla. Við fengum svo frábær viðbrögð að við ákváðum að endurtaka leikinn í ár“.
Frábærar viðtökur
Sífellt fleiri taka þátt í dagatalinu en vinsældir þess hafa farið vaxandi ár frá ári. „Við erum alltaf að fá inn nýja hópa sem vilja taka þátt en við erum líka með mjög staðfasta þátttakendur sem eru með ár eftir ár, sumir frá upphafi dagatalsins. Þetta er bara orðinn fastur liður á aðventunni“.
Myndböndin hafa ákveðið fræðslugildi og víkka aðeins sjóndeildarhringinn okkar. Börn búa við mismunandi aðstæður um allan heim en öll börn eiga sömu réttindi, sama hvar í heiminum þau búa. Myndböndin hafa fengið þúsundir áhorfa og hverju myndbandi fylgja svo nokkrar spurningar sem hvetja þátttakendur til að íhuga efni hvers dags. Þeir sem vilja geta tekið þátt í stafaþraut dagatalsins en þá svara þeir léttri spurningu á hverjum degi og fá 1-2 bókstafi að launum. Stöfunum þarf svo að raða í rétta röð til að finna lausnina.
Sælla að gefa en þiggja
Dagatalið býður einnig upp á það að þátttakendur gefi af sér. Samhliða dagatalinu höfum við farið af stað með söfnun en allur peningur sem safnast í ár fer til Malaví og verður notaður til að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum að standa á eigin fótum í gegnum fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna. Tilgangurinn með fjölskyldueflingunni er að gera foreldrum kleift að mæta grunnþörfum barna sinna til að koma í veg fyrir aðskilnað barna og foreldra.
Dagatalið og allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni okkar: sos.is.