Talið er fullvíst að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, geri kröfu um borgarstjórastólinn í viðræðum um myndun nýs meirihluta í borginni – að minnsta kosti hluta kjörtímabils.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Framsóknarflokkurinn vann stóran kosningasigur á laugardag þegar hann fékk 18,7% atkvæða í borginni og sexfaldaði fylgi sitt frá síðustu kosningum.
Morgunblaðið kveðst hafa heimildir fyrir því að hafnar séu þreifingar um meirihlutasamstarf Samfylkingar, Framsóknar og Pírata í Reykjavík. Þá muni Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, einnig hafa rætt við forystumenn annarra flokka um meirihlutasamstarf.
Færi svo að Samfylking, Framsókn og Píratar myndu hefja samstarf yrðu þessir flokkar með 12 borgarfulltrúa af 23.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að viðræður séu komnar mjög skammt á veg og aðallega verið skipst á hugmyndum um meirihlutamyndun. Því er þó haldið fram að flokksforysta Framsóknarflokksins hafi efasemdir um samstarf við Pírata en forystan sé þó reiðubúin að láta á það reyna í viðræðum.
Þá kemur fram að talið sé víst að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, geri kröfu um borgarstjórastólinn, að minnsta kosti hluta kjörtímabilsins.