Taldi sig vera að leggja löglega: „Bílastæðasjóður tekur ekki í mál að falla frá sektinni“

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins í dag skýtur nokkuð föstum skotum að borgaryfirvöldum vegna bílastæðamála í borginni. Í leiðaranum er sagt frá bílstjóra nokkrum sem segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Bílastæðasjóð Reykjavíkurborgar.

„Hann lenti í því fyrir jól að fara í miðbæinn og leggja þar á svæði sem var merkt með hvítum línum eins og þar væri bílastæði. Honum láðist hins vegar að leita nægilega að skiltum og sá því ekki „eitt skilti sem lítið ber á,“ eins og hann orðaði það, sem bannaði að bílum væri lagt.“

Leiðarahöfundur blaðsins segir að þetta sé ein af þeim breytingum sem borgin er að gera í viðleitni sinni til að fækka bílastæðum. Það liggi bersýnilega svo á að ekki vinnst tími til að fjarlægja merkingar af götum.

„Samgöngustjóri borgarinnar segir að það verði gert í vor og Bílastæðasjóður tekur ekki í mál að falla frá sektinni. Þetta rifjar upp ýmsar aðrar aðgerðir borgaryfirvalda í bílastæðamálum, meðal annars þegar þau senda starfsmenn sína á veiðar þegar landsleikir eða aðrir fjölmennir viðburðir eru í Laugardalnum. Svona lagað getur svo sem verið gagnlegt til að stoppa upp í gatið sem óráðsían hefur skilið eftir á borgarsjóði, en það réttlætir vart að fara slíku offari.“