Nýi miðbæjarkjarninn á Selfossi rís hratt og er að taka á sig fallega mynd. Fjölmörg fyrirtæki , veitingastaðir og verslanir munu bjóða þjónustu sína í nýja miðbæjarkjarnanum og tilhlökkun ríkir meðal eigenda að opna dyrnar sínar og taka á móti bæjarbúum, gestum og gangandi. Hjónin Albert Þór Magnússon og Lóa Kristjánsdóttir eigendur Lindex eru ein þeirra sem bíða spennt og tilhlökkun þeirra er mikil. Sjöfn Þórðar fær að fylgjast með þeim hjónum steypa fyrstu uppsteypuna fyrir húsnæði verslunarinnar sem er að rísa upp í hjarta kjarnans og spjallar við þau á Kaffi Krús að því loknu.
Lóa er Selfyssingur og segir meðal annars að nú sé hún loksins að sjá drauminn rætast, að fá fallegan miðbæjarkjarna sem laðar að og eflir bæjarbraginn, eitthvað sem Lóa hefur alltaf þráð. Lóa ólst upp á Selfossi og gaman er að segja frá því að það var móðir hennar sem opnað fyrsta kaffihúsið á svæðinu, Kaffi Krús og þar bjó Lóa á efri hæðinni og tók þátt í uppbyggingu kaffihússins með móður sinni. Sjöfn fær Lóu og Albert Þór til að ljóstra upp sögunni bak við tilurð þess að þau komu með Lindex til landsins og áhuga Lóu á því að selja barnafatnað. Ástríða þeirra fyrir því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur skín úr andliti þeirra og eldmóðurinn er mikill. „Við erum ákaflega stolt að loka hringnum hér á Selfossi og það er í raun táknrænt fyrir okkur og söguna,“ segja þau Albert Þór og Lóa. Missið ekki af áhugaverðu viðtali í þættinum í kvöld.