Takast á um hvort lögregluþjónn hafi sagt satt í skotárásarmáli

Aðalmeðferð fer nú fram í Landsrétti í skotárásarmáli sem átti sér stað á Egilsstöðum í fyrra. Sakborningurinn í málinu Árnmar Jóhannes Guðmundsson, neitar sök á í málinu, en fékk átta ára fangelsisdóm í héraðsdómi í fyrra.

Fréttablaðið fjallar um aðalmeðferð málsins í Landsrétti, en í frétt miðilsins kemur fram að tekist verður á um sannleiksgildi framburðar lögreglumanns sem mætti á vettvang umrætt kvöld.

Ákæruvaldið vill meina að hann hafi sagt satt og rétt frá og að hann hafi ekki haft ástæðu til annars. Þó væri mögulegt að hann hefði misst út einhverja parta.

„Ef það væri ásetningur til að segja ósátt þá held ég að hann hefði valið sér einhverja skynsamlegri leið,“ sagði Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari um það.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.