„Þetta er nokkur stefnubreyting frá fyrri yfirlýsingum frá mér,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi í dag. Þar voru meðal annars kynnt næstu skref um opnun landamæranna þann 15. júní næstkomandi.
Að því er fram kemur í frétt Fréttablaðsins sagði Þórólfur að ekki yrði tekið við vottorðum frá ferðamönnum nema ef um íslensk vottorð er að ræða. Er þá til dæmis um að ræða vottorð frá Íslendingum sem hafa farið erlendis og komið aftur.
Þórólfur benti á að þetta væri ákveðin stefnubreyting en samkvæmt fyrstu tillögum áttu ferðamenn að geta valið um að fara í skimum eða skila inn vottorði.
„Eftir nánari umræður og umhugsun þá sáum við fram á það að þetta yrði mjög erfitt í framkvæmd á landamærastöðvum hér og gæti gert málið snúnara og erfiðara.“