Tæplega þrefaldur verðmunur á gúrkum veldur usla

Mikill verðmunur á tveimur tegundum gúrkna hefur vakið nokkur viðbrögð á Facebook-hópnum Matartips. Neytandi nokkur deilir þar mynd af tveimur jafnstórum gúrkum; annarri á 160 krónur en hinni á um 469 krónur stykkið. Það er nánast þrefaldur verðmunur.

„Hvað kann agúrkan til hægri (Akur), sem hin til vinstri kann ekki?“ spyr sá sem deilir myndinni á síðuna. Ódýrari gúrkan er frá Íslensku grænmeti en hin frá Akri.

Sumir virðast hafa svör við þessari spurningu og benda á að gúrkan frá Akri er lífræn. „Ef mér skjátlast ekki er Akur gúrkan ræktuð í jarðvegi (ekki steinull/vikri) og notast við aðra áburðargjafa en í hefðbundinni ræktun,“ segir einn í hópnum.

Aðrir virðast gefa lítið fyrir þessa skýringu og kalla lífrænu ræktunina „skrautyrði“ sem „gefi manni lítið“.

Þá týnast einnig fleiri dæmi um viðlíka verðmun til dæmis á tómötum, lífrækt ræktuðum og ekki.