Tækniskuld og nýir Íslendingar FKA

Tækniskuld, mental load, Nýir Íslendingar FKA, straumhvörf vegna heimsfaraldurs - og jafnréttið sem er ákvörðun í þættinum Stjórnandanum á Hringbraut.

Í síðasta þætti fékk Hulda Bjarnadóttir stjórnandi þáttarins til sín þær Danielle Pamelu Neben hjá Alipay og stofnanda FKA New Icelanders, Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur stofnanda Karaconnect sem hlaut FKA Hvatningarviðurkenninguna 2020, Katrínu Olgu Jóhannesdóttur stjórnarkonu og fyrrum formann Viðskiptaráðs Íslands og Heiðrúnu Eriku Guðmundsdóttur hagfræðing og deildarstjóra á Hagstofu Íslands.

Nýir Íslendingar FKA

„Það skortir tækifæri fyrir konur sem koma af stærri mörkuðum...“ Danielle Neben ræddi við Huldu Bjarna um FKA sem vettvang fyrir ólíka reynslu og að Nýir Íslendingar FKA væri góð leið fyrir konur til að tengjast inn í samfélagið.

„Það kom mér rosalag mikið á óvart hvað þetta skipti mig miklu máli,“ segir Þorbjörg Helga um Hvatningarviðurkenningu FKA og ræðir straumhvörf í vor vegna heimafaraldurs. „Hvet konur til að taka hnútinn með hugmyndinni í maganum og kýla bara á það!“ hvetur Þorbjörg Helga konur áfram.

Jafnrétti er ákvörðun

Katrín Olga fjallar um lífið eftir Viðskiptaráð og árangur sem næst með samtalinu, ræðir áskoranir stjórnenda og jafnréttið sem hún er sannfærð um að sé ákvörðun.

Heiðrún Erika ræðir „mental load“ og uppsafnað álag sem kemur oft niður á ójafnri verkaskiptingu þegar kemur að ólaunuðum heimilisstörfum þar sem konur bera gjarnan þungan af heimilisstörfum í gagnkynja samböndum.

Stjórnandinn er niðurtalning FKA í Viðurkenningarhátíð FKA sem fer fram 27. janúar 2021. Þar eru þrjár konur í viðskiptalífinu að venju heiðraðar.

Þátturinn frá 8.desember er hér: