Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Samfylkinguna í frjálsu falli og segir að fylgistap hennar í skoðanakönnunum hljóti að vera einhverskonar met. Þar segir hann tækifærismennsku það sem skaði flokkinn helst.
Þetta kemur fram í nýrri Facebook færslu Brynjars. Þar skýtur hann föstum skotum að Rósu Björk Brynjólfsdótturog Jóhanni Páli Jóhannssyni,nýjum frambjóðendum Samfylkingarinnar.
„Margir hafa um kennt klúðurslegri uppstillingu á lista flokksins í Reykjavík. Það geti aldrei leitt til góðs að stilla ofarlega á lista flóttamanni frá Vg sem alltaf er með krepptan hnefa í vasa og síðan blaðamanni frá Stundinni sem aldrei hefur lagt neitt gott til og eina ástæðan fyrir að hann dregur andann er andúð og hatur á Sjálfstæðisflokknum. Einkennandi fyrir störf þeirra beggja er hagsmunagæsla fyrir aðra en þá sem byggja þetta land,“ skrifar Brynjar.
Hann segist ekki halda að innanflokksátök og uppstillingarklúður sé meginástæðan fyrir fylgistapinu. Nefnir hann tækifærismennsku.
„Sem allir eru farnir að sjá í gegnum, skaðar flokkinn mest til lengri tíma. Í stað þess að tala fyrir stefnu sinni endurómar Samfylkingin það sem hún telur vinsælast á samfélagsmiðlum hverju sinni þegar hún er ekki að tala um hvað aðrir eru spilltir og óheiðarlegir. Enginn flokkur nýtur trausts eða skapar sér trúverðugleika sem slíkri framgöngu.“
Hann segir Samfylkinguna á tyllidögum tala um að hún gæti hagsmuna þeirra sem standa höllum fæti. Hún geri það ekki með því að tala sífellt niður og tortryggja atvinnulífið.
„Flokkar sem telja að velgengni í atvinnulífinu sé á kostnað almennings eiga ekkert erindi í pólitík. Fólk upplifir að Samfylkingin sé fyrst og fremst í hagsmunagæslu fyrir RUV og þröngan hóp í mennta- og menningarelítunni, stundum kallað fræga fólkið, sem heldur að heimurinn snúist um það sjálft.“
Hann segir að lokum að það liggi ljómandi vel á sér. Hann sé bjartsýnn á framtíðina, hafi mikla trú á þjóðinni. „Við þurfum bara að losna við samfélagsmiðlana, þá eru okkur allir vegir færir.“
Menn hafa velt því fyrir sér hvernig á því standi að Samfylkingin sé í frjálsu falli á sama tíma og hún er í...
Posted by Brynjar Níelsson on Sunday, 2 May 2021