Systurmissirinn varð minn örlagavaldur

„Það var í raun skelfilegt að sjá að sjúkdómurinn í rauninni þarna fór með hana“, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í Mannamáli hjá Sigmundi Erni þar sem hann ræðir um systurmissinn. Systir Ásgeirs, Katrín Kolka, var aðeins 28 ára þegar hún lést árið 2011, hafði fengið krabbamein sem tók sig upp aftur og lést þá eftir aðeins sex mánuði. „Hún var 28 ára ung, hraust stelpa. Hún missti sjónina, hreyfigetuna og bara missti allt frá sér áður en hún fór, það er í raun alveg hræðileg reynsla“, segir Ásgeir.

Fráfall Katrínar Kolku varð til þess að Ásgeir skipti um stefnu í lífinu og yfirgaf bankasamfélagið.

Ásgeir hlífir sér hvergi í einstaklega persónulegu viðtali í Mannamáli í kvöld; fornaldarleg æskan, stamið og eineltið, togaralífið, pabbinn í pólitík og átakanlegur systurmissirinn sem varð til þess að hann breytti um kúrs, hætti í bankanum og fór í fræðasamfélagið.

Mannamál á dagskrá á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld, fimmtudag.