Systurnar Sigga, Beta og Elín Eyþórsdætur hafa upplifað ýmislegt eftir að þær tóku þátt í Eurovision á árinu. Þær voru gestir í þættinum Ísland vaknarí morgun en þar ræddu þær lífið eftir Eurovision og nýja lagið þeirra Dusty Road.
„Ég fékk minn fyrsta alvöru aðdáendapóst um daginn. Í gegnum lúguna frá Ameríku. Svo fékk ég mynd af manni með köttinn sinn, svona útprentaða mynd,“ sagði Beta en sendandinn, sem var fyrrum hermaður, sendi henni einnig sms.
„En það er allt í lagi, ég er búin að taka heimilisfangið mitt af já.is,“ sagði Beta.
Hæg er að sjá skjáskot af bréfinu hér að neðan og hlusta á viðtalið við þær systurhér.