Systir Sólveigar féll sviplega frá: „Alltaf mjög þakklát að hafa náð að kveðja hana“

Sólveig Arnarsdóttir leikkona var í einlægu viðtali við Sigurlaugu M. Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 á dögunum. Í viðtalinu fór hún um víðan völl og ræddi meðal annars leiklistina sem hún hefur starfað við á Íslandi og í Þýskalandi.

Í viðtalinu, sem fjallað er um á vef RÚV, fer hún einnig út í persónulegri hluti og ræðir fráfall systur sinnar, Guðrúnar helgu, árið 2003. Sólveig segist eiga Guðrúnu margt að þakka, meðal annars viðhorf sitt til lífsins.

Sólveig var búsett í Þýskalandi þegar Guðrún veiktist. Hún var með krabbamein og var útlitið gott áður en hún veikist aftur skyndilega. Úr varð að Sólveig dreif sig til Íslands og fór hún beint upp á spítala með Þorleifi bróður sínum.

„Þetta var síðasti dagurinn sem hún var nokkurn veginn með meðvitund. Hún datt inn og út og ég man að henni þótti þetta frekar dramatískt atriði, að ég væri mætt alla leið frá Þýskalandi […] Svo var þetta bara vika og svo var hún farin og ég er alltaf mjög þakklát að hafa náð að kveðja hana.“

Sólveig segir að Guðrún hafi verið einstök manneskja. „Það var lífskraftur og gleði og sjarmi og dugnaður,“ segir hún í viðtalinu og bætir við að hún vilji halda heiðri systur sinnar á lofti með því að hafa þessa eiginleika hennar að leiðarljósi í eigin lífi.

„Mjög margt sem Guðrún stóð fyrir hef ég tekið meira með mér heldur en ég ella væri […] Þegar kemur eitthvað mótlæti, því hún var ótrúlega jákvæð manneskja þótt hún væri ekkert að fela það að stundum var hún hrædd og þetta væri erfitt, en ég hef reynt að taka það með mér,“ segir Sólveig meðal annars en hlusta má á allt viðtalið við hana á vef RÚV.