„Friðfinnur Freyr Kristinsson bróðir okkar er búinn að vera týndur í fjóra daga. Ef einhver veit eitthvað, vinsamlegast látið lögregluna vita. Við eigum von á víðtækri leit lögreglu og jafnvel fleiri aðila í dag.“
Þetta skrifar systir Friðfinns en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins þar sem hún lýsir eftir honum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Friðfinni Frey Kristinssyni, 32 ára.
Síðast er vitað um ferðir Friðfinns, síðdegis fimmtudaginn í síðust viku, í nýja Vogahverfinu. Friðfinnur var klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur.
Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.
