Slökkviliðsmenn í Austur-Húnavatnssýslu komu saman í gær og vottuðu vini sínum og liðsmanni, Kára Kárasyni, fjölskyldu hans og „öllum þeim sem eiga um sárt að binda“ samúð sína og samstöðu.
Kári varð fyrir skotárás á heimili sínu á Blönduósi á sunnudaginn síðasta. Eva hrund eiginkona Kára lést í árásinni en Kári liggur enn þungt haldinn eftir skot í kviðinn.
„Slökkviliðsmenn Brunavarna Austur-Húnvetninga hittust í gærkvöldi til að sýna Kára Kárasyni, liðsmanni okkar og vini, samúð og samstöðu ásamt fjölskyldu hans og öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Ekki er hægt að koma í orð öllum þeim tilfinningum sem hafa vaknað hjá okkur öllum vegna þessa hræðilega harmleiks en mynd segir meira en mörg orð“