Svört spá Vilhjálms: Ófriðarbál á íslenskum vinnumarkaði á næsta ári?

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er ekki bjartsýnn á komandi tíma. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun og er það í þriðja skiptið í röð sem bankinn hækkar stýrivexti. Er nú svo komið að stýrivextir eru 1,5% en voru 0,75% fyrir nokkrum mánuðum.

„Það er mikilvægt að Seðlabankinn, stjórnvöld og sveitarfélög geri sér grein fyrir því að hækkun vaxta og aukin verðbólga muni ekki leiða til neins annars en auknum kröfum í kjarasamningum sem verða lausir 1. nóvember á næsta ári,“ segir Vilhjálmur og bætir við að umræddir aðilar muni ekki komast upp með að draga úr ráðstöfunartekjum launafólks með hækkandi vöxtum án þess að það kalli á viðbrögð frá verkalýðshreyfingunni.

Hann bendir á að 12 mánaða verðbólga á Íslandi sé í dag 4,4% og stærstur hluti hennar sé knúinn áfram af húsnæðislið vísitölunnar. Segir Vilhjálmur að þessi liður þekkist vart í öðrum löndum með sama hætti og hér á landi.

„Rétt er að geta þess að verðbólga án húsnæðisliðar nemur 2,9% sem er rétt yfir neðri vikmörkum Seðlabankans. Þeir sem bera ábyrgð á hækkun á húsnæðisliðnum í vísitölunni eru sveitafélögin vegna framboðsskorts á lóðum sem hefur leitt til þess að fasteignaverð hefur hækkað gríðarlega á liðnum árum,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir að lóðaskorturinn sé á ábyrgð sveitarfélaganna og kosti heimilin sem eru með verðtryggð lán mikla fjármuni.

„Ætla má að verðtryggðar skuldir heimilanna hafi hækkað á síðustu 12 mánuðum sem nemur 66 milljörðum vegna aukinnar verðbólgu. Það virðist því blasa við að stjórnvöld, seðlabankinn og sveitarfélögin séu því miður að kynda undir ófriðarbáli á íslenskum vinnumarkaði þegar líður á næsta ár.“