Svört spá Guðmundar: Rafmagnsreikningurinn gæti farið í 40 þúsund hjá venjulegu heimili

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir að svo gæti farið að rafmagnsreikningurinn hjá venjulegum íslenskum heimilum muni fimm- eða jafnvel tífaldast. Guðmundur, sem er fyrrverandi lektor í hagfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst, gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Nágrannaþjóðir okkar eiga í erfiðleikum varðandi orkukostnað, sérstaklega hvað snertir rafmagnsverð. Samkvæmt fréttum eru líkur á að rafmagnsverð hækki úr 2.000 pundum á ári í 3.500 pund á ári fyrir venjulegar fjölskyldur í Bretlandi. Samkvæmt gengi dagsins mun þetta vera um 333.000 kr. sem færu í 583.000 kr. á ári eða ef reiknað er á hvern mánuð þá færi mánaðarreikningurinn úr 28 þús. kr. á mánuði í 49 þús. kr. á mánuði.“

Guðmundur bendir á að gasið muni hugsanlega hækka enn meira og það geti haft þær afleiðingar að ekki verður unnt að vinna ál eins og verið hefur í Evrópu og þá einkum í Þýskalandi.

„Ef svo fer er ekki ólíklegt að álútflutningur frá Íslandi stöðvist að minnsta kosti tímabundið. Við þær aðstæður er erfitt að átta sig á til hvaða ráða álfyrirtæki muni grípa. Til skemmri tíma litið mundu álframleiðendur trúlega safna birgðum og leita annarra markaða. En hugsanlegt er að sum þeirra mundu huga að lokun álvera. Sérstaklega ætti það við um eldri álver sem starfað hafa um áratuga skeið. Þeim yrði einfaldlega lokað og mikilvægt er að átta sig á hvaða þýðingu það hefði fyrir raforkuverð á Íslandi.“

Ólafur segir að þá komi helst til álita að álverinu í Straumsvík yrði lokað með litlum fyrirvara.

„Ekki er auðvelt að átta sig á hver áhrif þess tekjumissis yrðu á rafmagnsverð ef þeim kostnaði yrði dreift á raforkunotendur á Íslandi. En samkvæmt lauslegum athugunum gæti þetta þýtt að rafmagnsverð mundi 5- til 10-faldast. Fyrir venjulegt heimili gæti þetta þýtt að 4.000 kr. rafmagnsreikningur á mánuði færi í 20.000 kr. á mánuði eða jafnvel í 40.000 kr. á mánuði ef illa færi.“

Guðmundur undirstrikar það að um sé að ræða mikla óvissu um niðurstöðuna ef svo skyldi fara að Straumsvíkurálverinu yrði lokað.

„Ekki er ljóst hvernig samningar standa en rafmagnsverð til álvera er leyndarmál eins og kunnugt er. Jafnframt er ekki ljóst hver yrðu viðbrögð Landsvirkjunar og hins opinbera í þessu efni. En það liggur í augum uppi að það yrði dýrt að milda höggið fyrir almenna neytendur. Svo gæti farið að ekki yrðu allir ánægðir með rafmagnsbíla sína.“