Bergþór Ólafsson, þingmaður Miðflokksins, segir að hætta þurfi að skerða venjulegt líf til að koma í veg fyrir öll smit nú þegar smitin leiða ekki lengur til veikinda, varla einkenna, hjá miklum meirihluta fólks. Þetta er meðal þess sem kemur fram í gren Bergþórs í Morgunblaðinu í dag.
Í grein sinni bendir hann á að 90% Íslendinga, 16 ára og eldri, séu nú fullbólusettir við Covid-19-veirunni. „Við þessar aðstæður hefði verið eðlilegt að hverfa aftur til eðlilegs lífs – lífs án hafta,“ segir hann en bendir á að raunin sé önnur.
Hann gagnrýnir ríkisstjórnina og segir hana bjóða upp á höft og takmarkanir sem hafi slæm áhrif á fólkið í landinu og atvinnulífið. Þá beinir hann gagnrýni sinni einnig að Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem hann segir að hafi nýlega kynnt frekari höft, frelsisskerðingar og þvingað breytt lífsmynstur hjá fullbólusettri þjóð.
„Svo virðist sem að í stað þess að taka ákvarðanir um höft og frelsisskerðingu á lífi fólks út frá stöðu veikinda vegna Covid-19- faraldursins sé almenn staða Landspítalans farin að marka stefnuna. Minnisblöð sóttvarnalæknis innihalda allt í einu tillögur á borð við „efla skal heilbrigðiskerfið“. Hvenær það varð hans hlutverk að hafa sérstaka skoðun á rekstri Landspítalans og nýtingu fjármagns,“ spyr Bergþór Bergþór og bætir við að heilbrigðisráðherra hafi haldið heilbrigðiskerfinu í heljargreipum síðastliðin fjögur ár. Þá hafi aðrir ráðherrar ekki gripið í taumana.
„Stjórnendur spítalans segjast ekki ráða við örfá, alvarleg tilfelli veikinda á hverjum tíma. Af því má ætla að spítalinn réði þá ekki við hópslys á vegum landsins eða aðrar hörmungar sem hent geta í daglegu lífi. Staðfest smit af völdum Covid-19 á Íslandi eru nú um 10 þúsund og ef heilbrigðiskerfið ræður ekki við fleiri tilfelli alvarlegra veikinda en nú eru uppi, örfá, þá verður sú raunin næstu 7 ár. En það er sá tími sem tekur, með þessu áframhaldi að ná hjarðónæmi, ef áætlað er að um 70% þjóðarinnar þurfi að smitast til að svo verði, miðað við rúmlega 100 smit á dag,“ segir Bergþór og bætir við að lausnin sé ekki að skerða áfram venjulegt líf fólks á Íslandi heldur sé lausnin að ráðast af alvöru að vandanum í rekstri heilbrigðiskerfisins hér á landi.
„Það er augljóslega í algjörum lamasessi og mun aðeins versna ef ekkert breytist,“ segir hann og bætir við að ríkisstjórnarflokkarnir virðist ekki starfinu vaxnir.
„Nú þegar þjóðin er nær fullbólusett þarf að hætta að setja fullfrískt fólk í sóttkví og lama þannig atvinnulífið og setja menntun barna í uppnám. Það þarf að hætta að skerða venjulegt líf til að koma í veg fyrir öll smit þegar smitin leiða ekki lengur til veikinda, varla einkenna, hjá miklum meirihluta fólks. Það þarf að tryggja það strax að heilbrigðiskerfið ráði við nokkur tilfelli alvarlegra veikinda af völdum Covid-19 eða slyss á þjóðveginum eða hvers annars sem kallar á umönnun á gjörgæslu með öllum færum leiðum. Það er ekki ásættanlegt að íslensk þjóð lifi áfram í fjötrum því þeir sem eiga að stjórna gera það ekki. Það er hægt að feta sig varlega út úr höftum án þess að leggja líf fólks í hættu, eins og sóttvarnalæknir hefur sagt. Gerum það.“