Svona vinnur Jón Gnarr bug á Covid-19 – Sjáðu myndbandið

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, virðist vera í góðu standi þrátt fyrir að hafa greinst með Covid-19 á dögunum. Rúmir tíu dagar eru síðan Jón greindist með veiruna og á fjórða degi veikinda sinna greindi hann frá því að lyktarskynið hefði horfið og einbeitingin væri lítil.

Jón birti skemmtilegt myndband á Twitter-síðu sinni í gær þar sem hann söng eitt erindi Völuspár. #völuspá can cure covid!,“ sagði Jón og fékk fín viðbrögð, enda söngurinn til fyrirmyndar. Myndbandið af Jóni syngja má sjá hér að neðan.