Svona vill Hall­grímur breyta Leifs­stöð í sumar: „Besta hug­mynd sem ég hef heyrt“

Hall­grímur Helga­son rit­höfundur varpar fram at­hyglis­verðri hug­mynd sem snýr að á­kveðnum breytingum í Leifs­stöð í sumar.

Vegna Co­vid-19 verður væntan­lega lítið um utan­lands­ferðir hjá landanum í sumar en það ætti ekki að þýða að við Ís­lendingar getum ekki upp­lifað stemninguna sem fylgir því að fara til út­landa.

„Hug­mynd í Kófinu, um leið og Víðir leyfir: Hafa Leifs­stöð opna fyrir burt­þyrstan landann, og leyfa honum að spranga um salina, láta leita á sér, taka einn öllara, spjalla og skella sér svo í Frí­höfnina. Hún væri í raun aðal-att­rak­sjónin í þessu dæmi, og verðið yrði lækkað þar enn meir til að draga að. Eða jafnast eitt­hvað á við það að versla á­fengi drukkinn? Vopna­leitinni yrði breytt í lottó, allir fengju miða í vasann við inn­ganginn og einn af hverjum þúsund miðum myndi svo bípa í hliðinu við mikinn fögnuð. Stemmningin yrði mikið stuð, allir hressir og brandararnir kæmu sjálf­krafa. "Ha-æ. Hvert eruð þið að fara?!"“

Hall­grímur leggur svo til að á fimmtu­dögum yrði menningar­veisla, tón­leikar og upp­lestrar. Reynsla hans sé sú að Ís­lendingum finnist Leifs­stöð í raun vera fal­legasti staður landsins.

„Þar líður þeim best, enda sést það, við erum alltaf svo glöð þar. Þar er fólk annað­hvort að koma heim til landsins sem það elskar eða fara burt frá landinu sem það hatar. Held að fólk langi alltaf í Leifs­stöð, líka þótt engin séu flugin. Til að auka stemmningu yrðu svo til­kynningar í kall­kerfi um að þessi eða hinn væri nú búinn með tímann sinn, fólk væri kallað upp úr eins og í sundinu í den. "Far­þegi á leið til Amsterdam, djók, Anna Björk Ingi­mars­dóttir, gjörðu svo vel að hafa sam­band við af­greiðslu."

Hall­grímur segir að þetta yrði allt saman at­vinnu­skapandi og ís­lenska kilju­markaðnum yrði auk þess bjargað. „Þetta myndi að auki redda rútu­fyrir­tækjunum því enginn gæti ekið heim... Ég er líka kominn með nafnið á þetta: Lukku­stund í Leifs­stöð - Happy Hour in Leifs­stöð.“

Ó­hætt er að segja að hug­mynd Hall­gríms hafi vakið at­hygli og eru margir á því að þetta sé ein­hver besta hug­mynd ársins. Leikarinn Björg­vin Franz Gísla­son segir til dæmis: „Þetta er ein­hver besta hug­mynd sem ég hef heyrt - ever!!!!“ Hann bætir svo við annarri at­huga­semd: „Svo er alltaf boðið upp á ljóða­lestur, tón­leika nú eða bara hefð­bundið uppi­stand sem byrjar yfir­leitt á “Hvað er málið með ISAVIA”.