Í dag, Þorláksmessu verður fremur hæg norðlæg átt og dálítil él norðan- og austanlands, en annars léttskýjað og talsvert frost. Samkvæmt Veðurstofu Íslands
Þykknar heldur upp á Suðurlandi seinnipartinn og lítils háttar snjókoma við ströndina seint í kvöld og nótt. Austankaldi eða strekkingur og víða snjókoma eða él á morgun, aðfangadag, en vestlægari og úrkomulítið eystra. Áfram strekkingsaustanátt á jóladag og él í flestum landshlutum, en dregur heldur úr frosti.
Þeir sem hyggjast aka milli landshluta um jólahelgina ættu að fylgjast vel með veðurspám og ástandi vega áður en lagt er af stað. Hyggilegt er að gera ráð fyrir að færð geti versnað með skömmum fyrirvara.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að ef fram fer sem horfir gæti þessi yfirstandandi desember orðið sá kaldasti frá 1973.
Á sunnudag (jóladagur):
Norðaustan 8-18 m/s, hvassast austantil. Snjókoma eða él, en úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi síðdegis. Frost 2 til 13 stig.
Á mánudag (annar í jólum):
Austlæg eða breytileg átt 5-13 og él á víð og dreif, en snjókoma suðaustantil. Frost 3 til 15 stig.
Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt 5-15 og dálítil él, en snjókoma austast. Áfram kalt í veðri.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt og dálítil él norðan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Frost 3 til 12 stig.
Á fimmtudag:
Breytileg átt og él á víð og dreif. Kalt í veðri.