Svona verður 17. júní höfuð­borginni – Breytt snið vegna CO­VID-19

Há­tíðar­höld á 17. júní verða með breyttu sniði í Reykja­vík í ár vegna CO­VID-19 veirunnar. Eru borgar­búar hvattir til að halda upp á daginn með vinum og fjöl­skyldu og skreyta heimili og garða með fánum og öðru í fána­litunum. 

Í til­kynningu sem Reykja­víkur­borg sendi frá sér kemur fram að morgunat­höfn á Austur­velli verði í beinni út­sendingu í sjón­varpi RÚV þar sem lands­menn geta fylgst með heima í stofu. At­höfnin er hefð­bundin og saman­stendur af á­varpi For­sætis­ráð­herra og fjall­konan frum­flytur sér­samið ljóð við til­efnið.

Að venju sjá ný­stúdentar um að leggja blóm­sveig við leiði Jóns og Ingi­bjargar í Hóla­valla­kirkju­garði að lokinni morgunat­höfn á Austur­velli. For­seti borgar­stjórnar flytur á­varp og skátar standa heiðursvakt. Borgin verður skreytt með fánum og blómum.

Fyrir þá sem ætla að bregða sér niður í bæ þá verður létt stemning í mið­borginni frá klukkan 13 til 18.  DJ Dóra Júlía sér um tón­list á Klambra­túni og gestir geta gætt sér á veitingum úr matar­vögnum á vegum Götu­bitans og sirkus­lista­fólk Hring­leiks sýna listir sínar. Hægt verður að heyra lúðra­sveitar­þyt í mið­borginni á milli kl. 13-18, sirkus­lista­fólk Sirkuss Ís­lands, kórar, List­hópar Hins hússins og Götu­leik­húsið bregða á leik víðs­vegar um mið­borgina til að skapa ó­væntar upp­lifanir.  

„En eins og sagði í upp­hafi er fólk hvatt til að setja upp sína eigin þjóð­há­tíð með vinum og ættingjum. Grilla, syngja, dansa og upp­götva sirkus­lista­manninn í sjálfum sér á heima­velli. Út­lit er fyrir tíu stiga hita, lítils háttar skúrum og mildu veðri,“ segir í til­kynningunni.

Þá munu Saga Garðars­dóttur og Katrín Hall­dóra ráð­leggja borgar­búum í skemmti­legum mynd­skotum um það hvernig hægt er að halda upp á daginn með pompi og prakt  í sínum garði, götu eða næsta græna svæði í ná­grenninu.  Hægt verður að nálgast mynd­skotin á Face­book síðu 17. júní og Reykja­víkur­borgar.

Þá er bent á sýninguna Næsta stopp um Borgar­línuna og upp­byggingu hennar í Ráð­húsinu. Eru á­huga­samir hvattir til að koma í Ráð­húsið og kynna sér fram­tíðar­á­form um sam­göngur á höfuð­borgar­svæðinu.

Meira á 17juni.is