Svona svaraði Guðmundur ungum dreng sem reyndi að vera fyndinn

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður er með þeim fyndnari á Twitter og í gærkvöldi sagði hann frá skemmtilegu atviki sem átti sér stað úti í búð.

„Ég missti kippu af Collab í búðinni með látum,“ segir hann og bætir við að í kjölfarið hafi unglingur „með stæla“ sagt við hann: „Gamli þú misstir eitthvað"

Ekki stóð á svörunum hjá Guðmundi ef marka má frásögn hans á Twitter.

„Ég: „Heyrðu ég get heyrt í strákunum fyrir þig ef þú vilt?"
U: „Ha?"
Ég: „Já strákunum í Mið-Íslandi hvort það sé pláss fyrir 1 í viðbót"

Fokkar ekki í gömlu fólki aftur þessi.“