Svona metur innanbúðarmaður í Samfylkingunni líkurnar á að Dagur fari í formanninn

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, er enn þögull um það hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í haust.

Í gær var greint frá því að Kristrún Frostadóttir, þingkona flokksins, væri alvarlega að íhuga að bjóða sig fram en þau tvö hafa helst verið nefnd sem næstu formenn flokksins. Logi Einarsson tilkynnti á dögunum að hann ætlaði að láta af formennsku.

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að flokksmenn í Samfylkingunni hafi fagnað yfirlýsingu Kristrúnar í gær. Varðandi líkurnar á að Dagur fari fram segir einn ónefndur sveitarstjórnarmaður í flokknum:

„Veð­bankinn innan flokksins segir að það séu ná­kvæm­lega 50/50 líkur á að Dagur fari fram.“

Fréttablaðið náði tali af Degi í gær en þá var hann staddur í fríi og benti á að hann kæmi ekki aftur til starfa fyrr en í næstu viku. Hann vildi að sinni ekki ræða eigin áform eða bregðast við yfir­lýsingu Krist­rúnar og því enn óvíst hvort Dagur taki slaginn.