Svona lítur veðrið út á landinu öllu um verslunar­manna­helgina

Allar líkur eru á því að það verði rigning um allt land næstu helgi, ef marka má veður­spá Veður­stofunnar.

„Það er ekki sér­­­lega gott veður á föstu­­dag og laugar­­dag á landinu, en á sunnu­­dag ætti veðrið að skána,“ segir Marcel De Vries, veður­­fræðingur hjá Veður­­stofu Ís­lands í sam­tali við Frétta­blaðið.

Hann segir að það sé lægð sem er að fara yfir suð­austur­hluta landsins og að það eigi að byrja að rigna á föstu­­dag.

Í Vest­manna­eyjum styttir upp á laugar­­dag, en helgin verður öll blaut á Akur­eyri ef marka má veður­spána.

„Þessi lægð kemur á landið á að­fara­nótt laugar­­dags og þegar hún færist til norð­austurs þá snýst vindurinn í norð­læga átt og þá styttir smám saman upp fyrir sunnan og vestan seint á laugar­­dag. Á sunnu­­dag er út­lit nokkuð gott, skýjað með köflum fyrir vestan og bjart fyrir austan. Al­­mennt úr­­komu­lítið,“ segir Marcel.

Hann segir að hitinn verði al­­mennt í kringum tíu stig um helgina, en það verður hlýjast yfir landinu á sunnu­­daginn.

„Á mánu­­dag verður hæg suð­aust­læg átt, þurrt að mestu. Það verður skýjað vestan til á landinu, en bjartar á austan­verðu landinu,“ segir Marcel.

Hann segir að þeir sem ætli á Þjóð­há­­tíð í Vest­manna­eyjum megi búast við rigningu.

„Þetta verður smá erfitt á föstu­­dag og á laugar­­dag í Vest­manna­eyjum. Það styttir upp um há­­degis­bil á laugar­­dag, en svo er veður nokkuð gott um allt land á sunnu­­dag og mánu­­dag,“ segir Marcel.

Þá segir hann að það eigi að rigna yfir helgina á Akur­eyri, en það styttir upp á að­fara­nótt sunnu­­dags. Á Egils­­stöðum á að draga úr úr­­komu á seinni­part laugar­­dags.

„Það verður svo bjart yfir landinu á sunnu­­dag og mánu­­dag. Á þriðju­­dag verður ró­­legt veður, skýjað að mestu en bjart fyrir austan. Svo er út­lit fyrir að það fari að rigna aftur á mið­viku­­daginn,“ segir Marcel.

Skjáskot/Veðurstofa Íslands.