Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir, betur þekkt sem Sirrý, segist hafa tekist að leysa svefnvanda sinn, nánast á einni nóttu, með ákveðnum grundvallarbreytingum á lífsstíl sínum.
Sirrý segir frá þessu í færslu á Facebokk.
„Reynsla mín er sú að þegar nokkrar miðaldra konur koma saman er gjarnan rætt um svefnvanda. Því langar mig að deila hér reynslu minni. Ég var alltaf að vakna á nóttunni, svaf oft of stutt, stopult og grunnt,“ segir Sirrý sem ákvað um áramótin að breyta venjum sínum.
Fór hún á svokallað hreint mataræði í þrjár vikur með góðum ræktarsystkinum.
„Þá er ekkert kaffi inni, ekki áfengi, ekki sykur, hveiti og ekkert borðað eftir kvöldmat. Og ég hætti líka í 100 daga að borða sælgæti (ís, popp... allt meðtalið). Nú er reynslan sú að ég sef eins og steinn. Ekkert vandamál. Djúpur svefn og vakna úthvíld.“
Sirrý segir að það að meltingin þurfi ekkert að vinna á nóttunni hafi gríðarleg áhrif á svefngæðin.
„Þetta er frábær reynsla sem ég mæli með. Mataræðið, nasl á kvöldin, koffín og áfengi hefur gríðarleg áhrif á svefninn. - Ég er ekkert að segja að kona þurfi að vera heilög en það er frábært að staldra við og taka til í matarvenjum og skoða venjurnar af og til,“ segir hún.