Geir Ólafsson söngvari var gestur Sigurlaugar M. Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 í vikunni. Þar fór Geir um víðan völl og rifjaði meðal annars upp skemmtilega sögu af því hvernig hann kynntist eiginkonu sinni, Adriönu.
Þannig er mál með vexti að árið 2009 starfaði Geir í Dúni og fiður þegar fyrirtækinu barst pöntun frá konu sem stödd var í Bláa lóninu. Um var að ræða pöntun á æðardúnssæng og kom það í hlut Geirs að búa sængina til og fara með hana á hótelið við Bláa lónið.
„Þar er þessi kona sem var að kaupa sængina ásamt núverandi konunni minni sem ég kynnist þarna. Þegar ég mæti þá er hópur stúlkna sem var að gæsa vinkonu sína,“ sagði Geir og bætir við að stúlkurnar hafi endilega viljað að Geir stillti sér upp með þeim fyrir myndatöku.
Að myndatökunni lokinni sér hann konuna sem var að kaupa sængina og vinkonu hennar sem reyndist vera Adriana.
„Hún spyr mig af hverju fólk er að taka mynd af honum. Henni fannst þetta skrýtið. Þá sagði ég að ég væri frægasti söngvari þessa lands. Þá segir Adriana: „Nú viltu ekki bara sanna það?“,“ segir Geir. Geir er ekki þekktur fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og varð úr að hann tók fyrir hana O Sole Mio.
Segja má að Geir hafi heillað Adriönu sem er frá Kólumbíu og héldu þau góðu samband eftir að hún sneri aftur til heimalandsins. Þremur árum síðar bauð Geir henni til Hollywood þar sem hann var að syngja og má segja að ekki hafi verið aftur snúið eftir það. „Hún sló til og síðan þá höfum við verið saman. Svo eignuðumst við dóttur okkar 2016 og giftumst ári síðar. Ég er svo ótrúlega heppinn.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Geir hér.