Svona há er desemberuppbót atvinnuleitenda

Óskert desemberuppbót atvinnuleitenda verður 94.119 krónur. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðsluna.

Í fyrra var hún 92.229 krónur.

Það er Vinnumálastofnun sem greiðir desemberuppbót til atvinnuleitenda eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.647 krónum með hverju barni.