Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, hitti Sigurð Inga Jóhannsson, innviðaráðherra á sáttafundi í dag. Fréttablaðið greinir frá og vísar í færslu Vigdísar á Facebook.
„Í dag hittumst við Sigurður Ingi og áttum hreinskilið, heiðarlegt og opið samtal,“ skrifar Vigdís. Sigurður Ingi vildi ekki tjá sig um fund þeirra þegar Fréttablaðið innti hann eftir svörum fyrr í dag.
„Ástæður fundarins þarf vart að tíunda en á fundinum bar Sigurður fram að mínu mati einlæga afsökunarbeiðni sem ég hef meðtekið. Ég lít svo á að með þessum fundi okkar sé komið að málalokum og sannanlega er þessu lokið af minni hálfu.“