Svona fer stríðið með saklaus börn: „Sýndu Pútín þetta“

Úkraínski ljósmyndarinnar Evgeniy Maloletka var á vettvangi þegar úkraínskir læknar reyndu að bjarga lífi sex ára stúlku í borginni Mariupol í gær.

Athygli er vakin á því að myndirnar neðst í fréttinni kunna að vekja óhug fólks.

Varaborgarstjóri Kænugarðs, Vladimir Bondarenko, birti svo mynd af annarri ungri stúlku, Polinu, sem lést eftir að árás var gerð á bifreið fjölskyldu hennar. Polina var 11 ára gömul og má sjá hana á myndinni hér að ofan.

Vladimír Pútín Rússlandsforseta hefur verið líkt við Adolf Hitler vegna innrásarinnar í Úkraínu sem kostað hefur á þriðja hundrað óbreyttra borgara lífið, þar á meðal fjölmörg börn, á aðeins fimm dögum.

Maloletka tók myndir í Mariupol af afleiðingum sprengjuárásar á fjölbýlishús í borginni, en innandyra var sex ára stúlka sem var flutt mikið slösuð á sjúkrahús eftir að sprengja lenti á íbúð hennar. Stúlkan, klædd í bleik náttföt, var úrskurðuð látinn á sjúkrahúsi skömmu eftir komuna þangað en á myndum sem birst hafa í fjölmiðlum má sjá þegar læknar reyna að bjarga henni. Síðasta myndin sýnir stúlkuna hana liggjandi látna á sjúkrabörum í herbergi á spítalanum í Mariupol.

Í umfjöllun Mail Online er myndunum af stúlkunni líkt við myndir af sýrlenska drengnum Alan Kurdi sem drukknaði þegar hann reyndi að komast til Evrópu vegna stríðsins í Sýrlandi árið 2015.

Í fréttinni kemur fram að læknir hafi sagt við Eveniy, meðan hann tók myndir: „Sýndu Pútín þetta: Sýndu honum augu þessa barns, sýndu honum læknana sem gráta.“

Hundruð þúsunda Úkraínumanna hafa reynt að flýja Úkraínu vegna innrásar Rússa, konur og börn í meirihluta þar sem karlmenn á aldrinum 18 til 60 ára þurfa að sinna herkvaðningu.

Myndirnar hér að neðan birti Evgeniy á Instagram-síðu sinni. Ítrekað er að þær geta valdið óhug hjá fólki.

-

-

-

-