Óhætt er að fullyrða að Steinar Þór Ólafsson hafi birt áhugavert myndband á Youtube í gær en þar heimsækir hann helstu sundlaugar höfuðborgarsvæðisins sem nú um mundir eru lokaðar vegna hertra samkomutakmarkana.
Enginn ætti að láta þetta áhugaverða myndskeið fram hjá sér fara sem sjá má neðst í fréttinni.Mbl.is hefur eftir Steinari að hann hafi séð kjörið tækifæri í því að fanga einstaka stemningu sundlauganna nú þegar þær eru lokaðar.
Hann segir að sig hafi langað til að gera þetta lengi. Venjulega séu fá tækifæri til að taka slíkt myndefni upp, enda laugarnar allajafna sneisafullar af gestum. „Og maður vill kannski ekki vera með drónann í sundlaug þegar fullt af fólki er þar,“ segir hann léttur.